Níunda Ólafsþing verður haldið fyrsta vetrardag, laugardaginn 24. október nk., í fyrirlestrasal Eddu við Arngrímsgötu. Allir velkomnir.
Ólafsþing er að þessu sinni einnig heiðursmálþing í tilefni sjötugsafmælis Jóns Axels Harðarsonar 2. október 2026.
Félagið Mál og saga stendur að ráðstefnunni í samstarfi við Málvísindastofnun Háskóla Íslands.
Vakin er athygli á:
Nýjar rannsóknir í málgerðarfræði – Utan gátta á Ólafsþingi: sérstakur viðburður daginn fyrir Ólafsþing.
Dagskrá
9:25–9:30 Þingið sett
9:30–10:00 Veturliði Óskarsson: Þau tíðkast nú hinu breiðu spjótin
10:00–10:30 Alexander Pfaff: Frá nafngervingu til lýsingarorðs: þróun veikrar (lýsingarorðs-) beygingar frá frumindóevrópsku til norrænu
10:30–11:00 Kaffihlé
11:00–11:30 Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík: Þýðing og aðlögun Saxo Grammaticus í íslenskum heimildum á 16. og 17. öld
11:30–12:00 Yelena Sesselja Helgadóttir: Um skottið á Skjóna og fleiri undur
12:00–12:30 Kristján Árnason: Um skáldskaparfræði Jóns Svefneyings
12:30–13:30 Hádegishlé – Súpa og brauð verður til sölu í kaffihúsinu Ými í Eddu
13:30–14:00 Helgi Skúli Kjartansson: Borðleggjandi? Eða bara athugandi?
14:00–14:30 Antonio Costanzo: Aṭṭhakavaggo og pāḷi: fornindóevrópsk málfræði í ljósi varðveizlu og miðlunar
14:30–15:00 Sigríður Sæunn Sigurðardóttir & Þórhallur Eyþórsson: Indóevrópskt vetrarævintýri
15:00–15:30 Kaffihlé
15:30–16:00 Þorgeir Sigurðsson: Hvað meinti málfræðingurinn? Af hverju vildi hann skrifa <earn> en ekki <iarn>?
16:00–16:30 Már Jónsson: Ex originali. Bjargvættur skjala á Sólheimum í Sæmundarhlíð
16:30–17:00 (1) Guðrún Þórhallsdóttir: hlýja og hlóa: Jón Axel og orðsifjafræðin – (2) Katrín Axelsdóttir: Bíll í oss
17:00 Ráðstefnuslit og léttar veitingar
Allir velkomnir
Ágrip ERINDA (EFTIR STAFRÓFSRÖÐ FYRIRLESARA)
Athugið að ekki eru birt ágrip erinda Guðrúnar Þórhallsdóttur og Katrínar Axelsdóttur.
Alexander Pfaff: Frá nafngervingu til lýsingarorðs: þróun veikrar (lýsingarorðs-) beygingar frá frumindóevrópsku til norrænu
Tvískipting í sterka og veika beygingu eða, nánar tiltekið, þróun n-stofna í lýsingarorðsbeygingu, telst ein af einkennandi nýjungum germanskra mála. Einkum hefur uppruni veikrar beygingar verið umdeildur allt frá 19. öld. Í þessu erindi verður fjallað um þróun veikrar (lýsingarorðs)beygingar frá frumindóevrópsku til norrænu.
Útgangspunkturinn er lýsingarorðsgreinirinn hinn í forníslensku, en sýnt verður fram á að hann hafi myndað eina heild með veiku lýsingarorði: [LL hinn L.vk ] og að veikir lýsingarorðsliðir hafi haft sömu dreifingu og sterkir lýsingarorðsliðir. En hvernig lenti hinn í „lýsingarorðsgildrunni“?
Lagt verður upp frá þeirri hugmynd að í frumindóevrópsku hafi ekki verið til sjálfstæður orðflokkur lýsingarorða í nútímaskilningi heldur sameiginlegur flokkur nafnorða og lýsingarorða, þar sem mörkin milli þessara flokka voru ekki skýr. Í framhaldi verður rætt um þróun sterkrar beygingar sem hinnar upphaflegu lýsingarorðsbeygingar í frumgermönsku sem og þróun veikrar beygingar, en sú síðarnefnda á rætur sínar að rekja til svokallaðra n-stofna og upprunalegrar nafngervingar. Hugmyndir um nafngervingu hafa verið uppi síðan á 19. öld (Osthoff) en hér verður gengið einu skrefi lengra og því haldið fram að veik „lýsingarorð“ hafi í raun og veru verið nafnorð í frumgermönsku og áfram í frumnorrænu.
Elstu norrænu dæmin um veik „lýsingarorð“ eru svo sem eingöngu viðurnefni (Kári hinn málspaki), þar sem hinn gegnir lykilhlutverki. Rök verða færð fyrir því að sambandið hinn + veikt „lýsingarorð“ hafi fyrst myndað nafnlið, en síðar verið endurtúlkað sem lýsingarorðsliður. Í þeirri þróun hafi hinn smám saman breyst úr ábendingarfornafni í sérstakan lýsingarorðsgreini og þannig stuðlað að umbreytingu veikra nafngervinga í eiginleg veik lýsingarorð.
Antonio Costanzo: Aṭṭhakavaggo og pāḷi: fornindóevrópsk málfræði í ljósi varðveizlu og miðlunar
Pāḷi er fornindverskt mál sem tilheyrir indóevrópskri málaætt. Staða pāḷi í þessari ætt er ekki fullkomlega skýr. Indversk mál eru yfirleitt flokkuð samkvæmt aldurstigi í forn-, mið- og nútímamál. Vedíska og sanskrít teljast til elzta stigs, en prākrit og pāḷi til miðstigs. Þó ber að hafa í huga að þessi flokkun er nokkuð yfirborðskennd og henni þarf að beita með aðgát, sérstaklega frá sjónarhóli samanburðarmálfræðinnar.
Til að koma nær kjarna málsins er ekki unnt að komast hjá því að skoða hvaða textar eru samdir á pāḷi. Þeir felast fyrst og fremst í fornum ræðum sem kenndar eru við Buddha eða meginlærisveina hans. Þessir textar mynda safn sem heitir Tipiṭakaṃ, eða „Þrjár körfur“. Þetta veigamikla textasafn er ekki einsleitt enda fyrirfinnast í því textar sem eru miklu eldri og sýna fornleg einkenni sem bera vitni um elzta stig málþróunar. Meðal þeirra má nefna fornkvæðasöfn á borð við Aṭṭhakavaggo og Pārāyanavaggo. Aṭṭhakavaggo hefur hliðstæður í öðrum fornum indverskum málum; brot af honum hafa fundizt í sanskrít og jafnvel í gāndhārī. Merkilegur handritafundur hefur átt sér stað laust eftir 2000 þar sem kvæði úr Aṭṭhakavaggo og fornar skýringar komu í ljós í handriti frá 1. öld f.Kr. Sá fundur getur varpað ljósi á þróun pāḷi og allrar arískrar málaættar til forna.
Varðveizla og miðlun pāḷitexta hafa drjúgan þátt í málfræðirannsóknum. Skilningur á hvernig textar hafa verið varðveittir í meira en 2000 ár er afgerandi til að greina þróun fornra arískra tungna. Saga „samsöngvanna“ (saṅgāyanāni) sem hafa átt sér stað allt frá dögum Buddha til 1956, getur varpað ljósi á hvernig textum var miðlað frá kynslóð til kynslóðar. Þetta er saga sem heldur enn áfram þar sem textar Sjötta Samsöngsins (Chaṭṭhasaṅgāyanaṃ) hafa verið færðir í stafrænt form svo að tölvuhugbúnaður á borð við CST Reader geti stuðlað að rannsóknum á textum, bæði hvað varðar efni og málfræði.
Helgi Skúli Kjartansson: Borðleggjandi? Eða bara athugandi?
Fjallað er um sérstakan fallhátt vissra sagna sem Jón Axel kallar þolmyndarauka og birtist sem:
- sagnfylling: eitthvað sé borðleggjandi, athugandi, óþolandi, ekki nokkrum manni bjóðandi;
- einkunn: ódrekkandi andskoti; (naumast) vinnandi vegur;
- hluti af atvikslið: að breyttu breytanda, mér vitandi
- og jafnvel sjálfstæður atviksliður: vonandi.
Um þetta hafa fræðimenn fjallað, t.d. Höskuldur Þráinsson og Halldór Ármann Sigurðsson, en einkum samtímalega. Hér verður því hugað að sögu eða þróun þessarar málnotkunar.
Merking þolmyndaraukans: að eitthvað sé skylt, ráðlegt eða mögulegt/ómögulegt að gera, samsvarar gerundivum í latínu.
Hann á ekki sameiginlegar rætur í latínu og norrænu, varð ólíklega til fyrr en í ítalískum málum.
Íslensku orðmyndirnar eru nákvæmlega eins og lýsingarháttur nútíðar, myndaðar með viðsk.+end. -andi (beygt í fornmáli). Afleiðsluviðskeytið er samstofna latn. lh.nt., hins vegar nokkurn veginn samhljóða latn. gerundivum.
Einfalda skýringin – kannski ekki borðleggjandi en a.m.k. athugandi:
Þegar norrænir menntamenn fóru að læra latínu og vildu þýða úr henni eða tjá sig í samræmi við hana, hafa þeir tekið upp nýja formdeild í sagnbeygingu, gefið henni merkingu gerundivum og notað orðmyndir lh.nt. vegna þess hve líkar þær voru hinum latnesku.
Getur norrænn þolmyndarauki verið svo ungur? Já, ef orðalagið „þiggjanda þýjar syni“ í Hlöðskviðu er yngra en frumgerð kvæðisins.
Þá eru hómilíubækurnar aðalheimildir um fyrsta stig í notkun þolmyndaraukans.
Hann er einnig algengur í Grágás, hefur varla komist inn í íslenskt lagamál fyrr en við ritun laganna á 12. öld og þá fyrir áhrif frá kristilegum þýðingum.
Notkun hans í fornsögum er svo runnin frá lagamálinu.
Á seinni öldum hefur þolmyndarauki vissra sagna, ekki alltaf þeirra sömu, tilheyrt almennum orðaforða, jafnframt því sem þolmyndarauka annarra sagna, útilokuðum í nútímamáli, bregður fyrir í ritmáls- eða lærdómsstíl. Þar helst hann stundum beygður, eins og í fornmáli, en um það er „að breyttu breytanda“ einangrað dæmi í nútímamáli.
Kristján Árnason: Um skáldskaparfræði Jóns Svefneyings.
Mikið hefur verið gert að því fyrr og síðar að setja norræn fræði í „alþjóðlegt samhengi“ og Ólafur hvítaskáld er e.t.v. fyrstur til slíkra tilrauna með Málskrúðsfræði sinni. Snorri má hafa kallast þjóðlegri í sinni „nálgun“. Frægt er að Guðbrandur Þorláksson og siðskiptamenn lögðu mikið upp úr því að viðhalda hefðum, en einnig vildu þeir kynna alheiminum þennan merkilega norræna arf. Þetta hélt áfram með ritun málfræðibóka á latínu svo sem málfræði Runólfs Jónssonar 1651. Áhugi á norrænum arfi efldist á átjándu öld með verkum Þormóðs Torfasonar og Árna Magnússonar. Jón Ólafsson Grunnvíkingur er vel þekktur sem samstarfmaður Árna, en annar Jón Ólafsson er minna þekktur í seinni tíð. Hann var bróðir Eggerts, oft nefndur Svefneyingur og ritaði merka bók sem kom út árið 1786 og bar titilinn: Om Nordens gamle Digtekonst, dens Grundregler, Versarter, Sprog og Foredragsmaade. Et Priisskrift ved John Olafsen. Kiøbenhavn: Trykt hos August Friderich Stein. [Verðlaunað 1783 af Vísindafélaginu danska.] Í fræðilegri umfjöllun seinni tíma er þessa rits að litlu getið, sem virðist ómaklegt. Leiðir Jóns og Rasmusar Rasks lágu saman í byrjun 19. aldar, en sá fyrrnefndi naut mikillar virðingar í Kaupmannahöfn og lést þar árið 1811. Ég hyggst blaða í þessari ágætu bók Svefneyingsins og kanna hvað af henni megi læra og hvað af hugmyndum kunni að halda gildi sínu. Eins og Ólafur Þórðarson ber Jón norrænan skáldskap saman við hinn klassíska, telur þann norræna stórmerkan, og segir að mál norræna kveðskaparins hafi verið svo víðfeðmt, að það „bolaði burt næstum allri annarri skáldskaparfegurð“: „[Skaldesproget] med sin omskrivende vidtløftighed fortrængte noget nær alle andre poetiske skiønheder“ (tilv. rit, bls. II).
Már Jónsson: Ex originali. Bjargvættur skjala á Sólheimum í Sæmundarhlíð
Jón Magnússon (1662–1738) er þekktastur fyrir að vera bróðir Árna og fyrir að hafa nærri sjötugur verið dæmdur til dauða fyrir þriðja hórdómsbrot. Sess hans í fræðaheimi nútímans mótast af því að hann skrifaði íslenska málfræði, þá fyrstu sinnar tegundar, samdi yfirgripsmikið lækningarit og tók saman ættartölur af miklum móð. Vert er líka að halda því til haga að hann var mikilvirkur afritari skjala fyrir bróður sinn, einkum á efri árum þegar hann var sestur um kyrrt í Skagafirði. Skjölin fékk Jón lánuð í héraði, skrifaði þau upp og lýsti innsiglum. Mestur hluti frumritanna er nú týndur og afritin ein til vitnis. Skriftin er auðþekkjanleg og fyrir vikið ljóst að Jón skrifaði eigi færri en 453 af 6300 afritum skjala í því sem kallast íslensk apógröf Árna Magnússonar. Í fyrirlestrinum verður framkvæmdinni lýst út frá orðum Jóns í stuttu æviágripi um bróður sinn að honum látnum: „Þetta varð hönum occasio til að útvega mörg gömul document, sem hann og jafnan eftir hendinni safnaði, og lét uppskrifa allt hvað hönum var mögulegt, með so stórri accuration og vigilance sem varla nema hönum kunnugastir kunnu að þenkja.“
Sigríður Sæunn Sigurðardóttir & Þórhallur Eyþórsson: Indóevrópskt vetrarævintýri
Sögnin snjóa í íslensku er dregin af nafnorðinu snjór og beygist veikt. Hún á sér samsvaranir í öðrum germönskum málum, þ.m.t. snow í ensku og schneien í þýsku (sjá t.d. Ásgeir Blöndal Magnússon 1989). Dæmi í eldri germönsku benda til að upphaflega hafi verið til sterk sögn af sömu rót, sbr. fornensku og fornháþýsku snīwan og forníslensku orðmyndirnar snýr (3p. et. fh. nt.) og snivinn (lh. þt.) sem koma fyrir í skáldamáli (Sveinbjörn Egilsson 1860: 754; Noreen 1923: 327). Sterku sögnina og samsvarandi nafnorð í germönsku má rekja aftur til frumindóevrópsku rótarinnar *snéigu̯h–, sem birtist m.a. í latínu ninguere ‘snjóa’ og nix ‘snjór’ (Kluge 1995: 736, LIV2: 573, EWA VIII s.v. ‘snîwan’). Skiptar skoðanir hafa verið um upprunalega merkingu frumindóevrópsku rótarinnar en hún hefur ýmist verið talin vera ‘festast, límast við’ (Hoffmann 1965), ‘snjóa’ (Feulner 2009) eða ‘falla’ (Kroonen o.fl. 2021).
Í þessu erindi rekjum við hugmyndir um merkingu frumindóevrópsku rótarinnar *snéigu̯h– og leggjum mat á þær. Þó að fyrri fræðimenn hafi haft sitthvað til síns máls teljum við að þeir hafi ekki tekið nægilegt tillit til vitnisburðar í einstökum indóevrópskum málum, trúverðugrar merkingarþróunar og almennra mynstra veðursagna. Við tökum undir skoðun Kroonen o.fl. (2021) um að sögnin hafi upprunalega merkt ‘falla’ en byggjum niðurstöðu okkar á öðrum röksemdum en þeir. Útgangspunktur okkar er þróun sagnarinnar með hliðsjón af þekktum myndunarleiðum veðursagna og kenningum um setningafræði og rökliðagerð slíkra sagna. Nálgun okkar sneiðir hjá ósennilegum ferlum sem stungið hefur verið upp á í merkingarþróun sagnrótarinnar. Við ályktum að rótin hafi þegar á frumindóevrópskum tíma fengið merkinguna ‘snjóa’ sem gat svo aftur leitt af sér merkinguna ‘festast, límast við’ sem kemur sjaldan fyrir og er bundin við ákveðin skilyrði.
Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík: Þýðing og aðlögun Saxo Grammaticus í íslenskum heimildum á 16. og 17. öld
Saxo Grammaticus reit Danasögu sína, Gesta Danorum, um 1200 fyrir Absolon erkibiskup í Lundi. Í þessu stórvirki rekur hann sögu Danaveldis frá forsögulegum tímum og fram að tíð erkibiskupsins. Að eigin sögn studdist Saxo m.a. við rúnasteina og íslenskar heimildir. Verk Saxo var fyrst prentað á latínu árið 1514 en dönsk þýðing er fyrst prentuð árið 1575 af Anders Sørensen Vedel. Þýðing Vedels virðist snemma komast í hendur menntamanna á Íslandi og íslenskar þýðingar á hlutum Danasögu Saxo rata inn í íslensk handrit, en með ólíkum hætti og með ólíkum aðferðum.
Fyrst ber að nefna stuttar endursagnir eða útdrætti, sem koma fyrir í Oddaannál og Oddaverjaannál sem teknir eru saman seint á 16. öld, og í Vermundar þætti og Upsa sem er skrifaður seint á 17. öld. Þá sækja Ambáles rímur og Ambáles saga, frá seinni hluta 17. aldar, að einhverju leyti yrkisefni sitt til Danasögu Saxo – en þó ekki með beinum hætti. Rímurnar og söguna verður fremur að kalla aðlögun á efni Saxo fremur en þýðingu. Að lokum hin ævintýralega kristniboðssaga Gorms saga gamla, sem er skrifuð seint á 17. öld, en sagan sækir efni sitt beint í útgáfu Vedels og mætti kalla eiginlega þýðingu, en þar er efnið jafnframt aukið og aðlagað að íslenskri bókmenntahefð.
Í erindinu verða þessi fyrstu spor Saxo Grammaticus í íslenskum heimildum rakin, umhverfið sem endursagnir á Saxo eða þýðingar á verki hans spretta upp úr kannaðar. Sérstakri athygli verður beint að Gorms sögu gamla – fyrstu eiginlegu þýðingunni – og tilurð hennar í íslenskri gerð.
Veturliði Óskarsson: Þau tíðkast nú hinu breiðu spjótin
Í þessum fyrirlestri verður fjallað um tilhneigingu sem kom upp á 13. öld eða þar um bil til þess að laus, ákveðinn greinir taki veikri beygingu, sambærilegri við veika beygingu lýsingarorða, t.d. „Voru þar hinu beztu viðtökur“ (Sturlunga saga, handrit frá um 1350–1370). Fremur lítið hefur verið fjallað um þessa tilhneigingu, sem síðar gekk til baka, þó að dálítið megi tína til úr fræðiritum og textaútgáfum. Leitað var dæma í handritum og textasöfnum og fundust alls um 400 dæmi um veika beygingu greinisins, aðallega í handritum frá 14. og 15. öld. Greint verður frá því hvað helst hefur verið sagt um þessa litlu málbreytingu, hvaða dæmi er að finna um hana og hvaða ályktanir megi helst draga um aldur hennar, upphaf og afdrif. Titill fyrirlestursins er hin alkunnu orð Atla, bróður Grettis Ásmundarsonar, þegar hann var veginn, en í öllum elstu handritum sögunnar hefur greinirinn veika beygingu þó að „hin breiðu“ standi í útgáfum.
Yelena Sesselja Helgadóttir: Um skottið á Skjóna og fleiri undur
Þórnaldar þula er líklega þulna erfiðust til að átta sig á. Í henni er samtal, a.m.k. á köflum, en erfitt er að átta sig á því hver segir hvað í hverjum texta hennar þótt það skipti oft sköpum fyrir túlkun atburðarásar í þulunni (en bæði samtal og atburðarás eru sjaldgæf fyrirbæri í þulum síðari alda). Því er ekki að undra að upp frá lokum 18. aldar fylgja þulunni oft ýmsar frásagnir í óbundnu máli (sem formáli eða eftirmáli) af undarlegri björgun fanga nokkurs, sem átti að taka af lífi á Þingvöllum, en þá kemur kona (tröllkona / álfkona / ókennd kona) eða maður sem flytur þuluna og stelur með því athygli þingheimsins, en á meðan hverfur fanginn.
Einn texti þulunnar sker sig þó úr. Í Lbs 587 4to IX (57r–58v) er „Útleggíng þulunnar af mjer ónefndum“ með hendi Stefáns Þorvaldssonar (1808–1888), prests í Hítarnesi, Stafholti og víðar, en hann kallar textann „útskíríng ÿfir Þornaldarþulu“. Hugsanlega er útleggingin skrifuð eftir blöðum Sveins (Þórðarsonar, 1786–1866) „handlæknis“ í Laxárholti. Fyrir utan varðveislusögu sína er þessi texti áhugaverður vegna túlkunar sinnar á ýmsum atriðum í þulunni, vegna þess að útlegging þulunnar er í mótsögn við formála hennar og ekki síst vegna þess að ekki er auðhlaupið að því að finna neinn annan texta þulunnar sem myndi passa vel saman við þessa útleggingu. Þá vekur notkun orðsins skott um heststagl spurningar, sem og dróttkvæðar hendingar í þululok. Í erindinu verður kastljósinu beint að þessum atriðum.
Þorgeir Sigurðsson: Hvað meinti málfræðingurinn? Af hverju vildi hann skrifa <earn> en ekki <iarn>?
Í Fyrstu málfræðiritgerðinni eftir óþekktan höfund frá miðri 12. öld er lagt til að orðið járn sé skrifað <earn> en ekki <iarn>. Hreinn Benediktsson taldi að þetta lýsti eða ætti að lýsa fornum framburði orðsins [1] og um það hafa aðrir verið sammála. Orðið járn er dregið af orðinu ísarn annaðhvort beint eða í gegnum írsku sem millilið. Til að skýra ritháttinn <earn> hefur verið vísað til kenninga um að orðið íarn fyrir járn í írsku hafi haft þetta form í eina tíð. Jón Axel Harðarson [2] hafnaði því hins vegar að Fyrsti málfræðingurinn hefði þekkt fornan framburð orðsins og hélt því fram að málfræðingurinn og samtímamenn sem hann kallaði til vitnis hefðu endurgert forna mynd orðsins með hliðsjón af orðum sem mynduð voru samkvæmt reglunni éa > já í orðmyndum eins og fjár > féar og séa > sjá. Hér er sett fram sú tilgáta að málfræðingurinn hafi notað sérhljóð úr kerfi þriggja áherslulausra sérhljóða til að tákna <j> en á 12. öld voru þau <e, o, a> en urðu <i, u, a> eftir 1200. Almennt hefði tíðkast þegar <j> í kveðskap var gert atkvæðisbært í samtíma höfundar að nota ekki sérhljóð eins og í upphaflegri orðmynd, heldur hafi verið notað áherslulaust sérhljóð. Athugað er hvaða afleiðingar þetta hefði haft fyrir orð sem aðeins varðveittust í kveðskap í munnlegri geymd og ekki var augljóst af hvaða orðum voru dregin (þar á meðal: kníar, téa, Kíarr).
[1] Hreinn Benediktsson. 1972. The First Grammatical Treatise. Reykjavík, bls. 156–158.
[2] Jón Axel Harðarson. 2011. ”Um orðið járn í fornnorrænu“. Orð og tunga 13, bls. 99–103.