Níunda Ólafsþing félagsins verður haldið fyrsta vetrardag, þ.e. laugardaginn 24. október, í fyrirlestrasal Eddu.
Ólafsþing verður í ár öðrum þræði heiðursmálþing í tilefni af sjötugsafmæli Jóns Axels Harðarsonar fyrr í mánuðinum, 2. október.
Að venju er kallað eftir fyrirlestrum um söguleg málvísindi og textafræði á málvísindalegum grunni. Efni fyrirlestranna getur tengst sögulegri málfræði íslensku, norrænna, germanskra eða annarra indóevrópskra mála, enn fremur handritafræði, rúnafræði, bragfræði, nafnfræði eða goðafræði svo eitthvað sé nefnt.
Í þetta sinn er einnig kallað eftir framlögum til Ólafsþings sem heiðursmálþings, fræðilegum fyrirlestrum um efni á áhugasviði Jóns Axels eða annars konar erindum sem hæfa tilefninu.
Erindi á Ólafsþingi skulu að jafnaði flutt á íslensku en einnig kemur til greina að þau séu flutt á öðrum málum. Lengd fyrirlestra er venjulega 20 mínútur auk 10 mínútna til umræðna. Hægt er að halda styttri erindi á heiðursmálþinginu.
Þeir sem hafa hug á að halda fyrirlestur eru beðnir um að senda vinnutitil og útdrátt um efnið (200–300 orð) til Guðrúnar Þórhallsdóttur (gth@hi.is) eigi síðar en 15. september. Hugmyndir um annars konar framlög ætti líka að senda henni.