Sjöunda Ólafsþing félagsins verður haldið fyrsta vetrardag, þ.e. laugardaginn 26. október nk., í fyrirlestrasal Eddu.
Kallað er eftir fyrirlestrum um söguleg málvísindi og textafræði á málvísindalegum grunni. Efni fyrirlestranna getur tengst sögulegri málfræði íslensku, norrænna, germanskra eða annarra indóevrópskra mála, enn fremur handritafræði, rúnafræði, bragfræði, nafnfræði eða goðafræði svo eitthvað sé nefnt.
Erindi á Ólafsþingi skulu að jafnaði flutt á íslensku en einnig kemur til greina að þau séu flutt á öðrum málum.
Þeir sem hafa hug á að halda fyrirlestur eru beðnir um að senda vinnutitil og útdrátt um efnið (200–300 orð) til Jóns Axels Harðarsonar (jonaxelh@hi.is) eigi síðar en 1. október.