2. Ólafsþing

2. Ólafsþing var haldið 27. október 2018 í safnaðarheimili Neskirkju

Dagskrá

8:55–9:00        Setning

9:00–9:30        Þórhallur Eyþórsson: Rasmus Rask og almenn málvísindi

9:30–10:00      Auður Hauksdóttir: Viðhorf Rasks til íslenskrar tungu

10:00–10:30    Svavar Sigmundsson: „því eigum við sjálfir að skemma ockar túngumál og gjöra háð að sjálfum oss?“ – Rask og málhreinsunarstarf hans

Hlé: kaffi, te og kleinur

11:00–11:30    Kristján Árnason: Um banamein tungumála

11:30–12:00    Haukur Þorgeirsson: Glíman við Snorra-Eddu: Frá 1818–2018

12:00–12:30    Þorgeir Sigurðsson: Rasmus Rask og Arinbjarnarkviða

Hádegishlé

13:30–14:00    Katrín Axelsdóttir: Breytt hlutverk nokkurra óákveðinna fornafna

14:00–14:30    Guðrún Þórhallsdóttir: Sjö daga fasta í röku

14:30–15:00    Jón Axel Harðarson: Um meinta hljóðbreytingu kwe > ko í norrænu og                      frumgermanska fyrirrennara íslensku orðanna koma og kona

Hlé: kaffi, te og kleinur

15:30–16:00    Guðvarður Már Gunnlaugsson: Hvers vegna skipti Einar Hafliðason milli textaskriftar og léttiskriftar í Lögmannsannál?

16:00–16:30    Bjarni Gunnar Ásgeirsson: Endurskoðun á sambandi þriggja handrita Snorra-Eddu

Ráðstefnuslit og léttar veitingar

Útdrættir Erinda (í stafrófsröð)

Auður Hauksdóttir: Viðhorf Rasks til íslenskrar tungu

 Tímamótaverk Rasmusar Kristians Rasks Vejledning til det islandske eller gamle nordiske sprog kom út í Kaupmannahöfn árið 1811, en var síðar (1832) gefið út í styttri og nokkuð breyttri mynd undir heitinu Kortfattet vejledning til det islandske eller nordiske sprog.

Í frumútgáfunni, sem inniheldur 6 kafla auk ítarlegs inngangs, fjallar Rask um íslenska tungu út frá ólíkum sjónarhornum: hljóðfræði og réttritun (udtale og retskrivning), beygingar-fræði (formlære), orðmyndun (orddannelse), setningarfræði (ordføjning), bragfræði (verslære) og sögulegri þróun íslenskunnar í samanburði við aðrar tungur (om sprogarterne). Í inngang-inum ræðir Rask um notagildi tungumála og þá sérstaklega mikilvægi íslensku og íslensku-kunnáttu fyrir Dani.

Talsvert hefur verið rætt og ritað um málfræðihluta bókar Rasks, en aftur á móti hefur viðhorfum hans til notagildis íslenskunnar og eiginleika hennar í samanburði við aðrar tungur verið minni gaumur gefinn. Í fyrirlestrinum verður fjallað um þessi viðhorf Rasks til íslensku og íslenskukunnáttu, eins og þau birtast í umræddri bók og nokkrum bréfum hans til lærðra manna. Þá verður gerð grein fyrir skoðunum hans á margvíslegu notagildi íslenskunnar fyrir Dani.

Loks verður rætt hvernig viðhorf Rasks endurspegla það mikilvæga hlutverk sem íslensk tunga og fornbókmenntir gegndu við myndun dansks þjóðernis um aldamótin átján hundruð.

Bjarni Gunnar Ásgeirsson: Endurskoðun á sambandi þriggja handrita Snorra-Eddu

 Skiptar skoðanir eru á innbyrðis tengslum handrita Snorra-Eddu en flestir eru hallir undir þá skoðun að í grófum dráttum megi skipta aðalhandritunum fjórum í tvo hópa, í öðrum séu Konungsbók, Wormsbók og Trektarbók en í hinum Uppsalabók. Að minnsta kosti sex fræði-menn hafa teiknað upp ættarskrá handrita (eða stemma) Snorra-Eddu: Edzardi (1876), Mogk (1879), Müllenhoff (1883), van Eeden (1913), Boer (1924) og Finnur Jónsson (1931). Aðeins þeir þrír síðastnefndu hafa fjallað sérstaklega um samband Konungsbókar, Wormsbókar og Trektarbókar, enda varð mikilvægi Trektarbókar ekki ljóst fyrr en seint á 19. öld. Að sumu leyti stangast skoðanir þremenninganna á: Hollendingarnar van Eeden og Boer eru sammála um að samband Konungsbókar og Trektarbókar sé náið; þær séu systur en Wormsbók frænka þeirra. Aftur á móti lítur Finnur Jónsson (1931) svo á að Konungsbók og Wormsbók séu systur og að Trektarbók sé frænkan. Haukur Þorgeirsson (2017) hefur nýlega tekið undir skoðanir Hollendinganna. Hann segir að röksemdir þeirra séu sterkar og bendir á að ósam-ræmi er á milli ættarskrár Finns og umfjöllunar hans um samband handritanna, en ólíkt van Eeden og Boer útskýrði Finnur ekki ættarskrá sína með ýtarlegri greinargerð. Þrátt fyrir ann-marka á ættarskrá Finns tel ég hann þó hafa nokkuð til síns máls — ýmislegt bendir til að Konungsbók og Wormsbók séu nánari en Konungsbók og Trektarbók. Í fyrirlestrinum mun ég fara yfir fyrri rannsóknir og færa rök fyrir því að ættarskrá Finns Jónssonar lýsi sambandi þessara þriggja handrita betur en ættarskrár van Eedens og Boers.

Guðrún Þórhallsdóttir: Sjö daga fasta í röku

Forsetningarliðurinn í rǫku er þekktur úr einni fornri heimild, Jóns sögu postula, þar sem segir af skiptum Jóhannesar við heiðingjann Aristodemus. Þetta stakdæmi má kalla tvírætt bæði að formi og merkingu. Ritháttinn má túlka á fleiri en einn veg og endingin -u gæti bæði átt við þágufall eintölu kvenkyns nafnorðs og þágufall eintölu hvorugkyns í sterkri lýsingarorðsbeyg-ingu. Því kemur ekki á óvart að fjallað er um físl. í rǫku á ólíkan hátt í handbókum. Þótt fræði-menn virðist almennt sammála um að tengja orðmyndina rǫku við frumgermanska lýsingar-orðið *raka- ‘beinn’ og skyld orð hafa þeir greint myndina á ólíka vegu. Upplýsingar hand-bóka um orðasambandið í rǫku og skyld eða lík orð eru einnig að sumu leyti villandi.

Í fyrirlestrinum verður leitast við að varpa ljósi á sögu forsetningarliðarins í rǫku með því að grafast fyrir um merkingu hans og uppruna. Annars vegar verða þrjár hugsanlegar orðsifjaskýringar kynntar og bornar saman við hina viðteknu skýringu. Hins vegar verður tekist á við valið á milli þess að túlka orðmyndina rǫku sem þágufall kvenkynsorðsins raka* og sem þágufallsmynd hvorugkyns lýsingarorðsins rakr*.

Guðvarður Már Gunnlaugsson: Hvers vegna skipti Einar Hafliðason milli textaskriftar og léttiskriftar í Lögmannsannál?

 Í þessum fyrirlestri ætla ég að ræða um handritið AM 420 b 4to sem hefur að geyma Lög-mannsannál. Einar Hafliðason skrifaði megnið af honum um eða upp úr 1360; hönd hans er einnig á nokkrum fornbréfum. Þetta handrit er elsta frumrit íslensks höfundar sem varðveitt er, að því best er vitað. Lögmannsannáll er einnig merkilegur vegna þess að skrifarinn skiptir á milli textaskriftar og léttiskriftar sem aðrir skrifarar gera nánast aldrei í sama handritinu. Tilviljun virðist ekki ráða þessum skiptum en ekki er ljóst hver ástæðan fyrir þeim er. Ég ætla að leggja fram hugsanlega skýringu og jafnframt að athuga hversu staðfastur Einar var í að fylgja þeirri reglu sem hann hafði sett sér.

Haukur Þorgeirsson: Glíman við Snorra-Eddu: Frá 1818 til 2018

 Útgáfa Rasks á Snorra-Eddu 1818 markaði tímamót. Þar var Snorra-Edda í fyrsta skipti prentuð í formi sem ætla má að fari nærri upphaflegri gerð verksins. Rask lagði textann í Konungsbók (GKS 2367 4to) til grundvallar en raunar má segja að varðveisla þess texta hafi þá hangið á bláþræði. Elstu uppskriftir Konungsbókar glötuðust í eldinum 1728 og á dögum Rasks var handritið sjálft talið glatað. Rask hafði þó undir höndum uppskrift textans eftir Ísleif Einarsson (1765-1836). Þessa uppskrift taldi Rask mjög nákvæma og var það með réttu. Seinna kom svo Konungsbók sjálf aftur í leitirnar og býr núna í Árnagarði.

Í erindinu verður fjallað um vandann við að gefa út Snorra-Eddu og hvernig útgef-endur hafa leyst úr honum. Auk útgáfu Rasks verður fjallað stuttlega um útgáfur Finns Jóns-sonar og Anthony Faulkes. Eins og Rask lögðu Finnur og Faulkes texta Konungsbókar til grundvallar en þeir höfðu mismunandi viðmið um það hvenær leiðrétta ætti textann eftir hinum handritunum. Finnur lagði til grundvallar ættartré handrita sem veitt gæti að nokkru leyti sjálfvirka aðstoð til að leiðrétta textann. Faulkes taldi hins vegar óráð að leggja stemma til gundvallar og taldi að best væri að leiðrétta textann aðeins þar sem texti aðalhandritsins hefði ekki skynsamlega merkingu. Hvorugur fylgdi þó sinni yfirlýstu aðferð út í æsar enda hafa þær báðar kosti og galla.

Síðan 2016 hef ég stýrt rannsóknar- og útgáfuverkefni um Konungsbók Snorra-Eddu. Í erindinu greini ég frá sumu af því sem ég hef orðið vísari og því sem mér þykir enn vera ógert í textafræði Snorra-Eddu.

Katrín Axelsdótir: Breytt hlutverk nokkurra óákveðinna fornafna

Óákveðin fornöfn sem þýða má með ensku fornöfnunum some, any og no (og öðrum áþekkum) eru áhugaverður hópur orða. Tvennt við þessi fornöfn er einkum athyglisvert. Í fyrsta lagi er innbyrðis afstaða þeirra (eða hlutverkadreifing) gríðarlega mismunandi milli mála og í öðru lagi er þessi afstaða mjög óstöðugt fyrirbæri. Fram á þetta sýndi Martin Haspelmath (1997) í yfirgripsmikilli rannsókn þar sem borin voru saman með tilliti til þessa fjörutíu tungumál, þar á meðal íslenskt nútímamál. Samanburðurinn byggist á myndrænni framsetningu níu hlut-verka fornafna: hlutverk 1: tiltekið og þekkt (e. specific, known), hlutverk 2: tiltekið og óþekkt (e. specific, unknown), hlutverk 3: óraunverulegt og ótiltekið (e. irrealis, non-specific), hlutverk 4: spurning (e. question), hlutverk 5: skilyrði (e. conditional), hlutverk 6: óbein neitun (e. indirect negation), hlutverk 7: bein neitun (e. direct negation), hlutverk 8: samanburður (e. comparative), hlutverk 9: valfrelsi (e. free-choice).

Í fyrirlestrinum verður rannsókn Haspelmath stuttlega reifuð, mat lagt á greiningu hans á íslensku og hún endurskoðuð. Þá verður nálgun hans beitt til að kortleggja hlutverkadreifingu fornafnanna nokkur, einhver, neinn og engi (nú enginn) í forníslensku og hún borin saman við nú-tímamál. Samanburðurinn leiðir í ljós að allmargt hefur breyst: notkunarsvið nokkur, neinn og engi(nn) hefur dregist saman, svið einhver er nú svolítið annað en áður og tíðni þess fornafns hefur snaraukist í ýmsum hlutverkum. Þá hefur komið upp verkaskipting nokkur og einhver í spurnarsetningum og jafnvel líka skilyrðissetningum (einhver er notað ef væntingar eru jákvæðar eða hlutlausar en nokkur ef þær eru neikvæðar) en þessarar verkaskiptingar gætti ekki í fornu máli.

Kristján Árnason: Um banamein tungumála

 Tungumál sem hverfa úr þessum heimi þegar síðustu málhafar þeirra gefa upp öndina eru í útrýmingarhættu. Engar nýjar kynslóðir læra þessar tungur í æsku og hafa sem móðurmál. Oft eru þessi deyjandi mál án rithefðar, og vitneskja um þau varðveitist helst í lýsingum mál-fræðinga og mannfræðinga sem sýna formi þeirra og arfleifð áhuga. Þau verða að öðru leyti heiminum gleymd. Íslenska er ekki í þessari stöðu; samt hafa menn spáð dauða hennar. Rasmus Kristján Rask spáði því að danska tæki við af íslensku eftir þrjú hundruð ár frá spádómsdegi, og Eiríkur Rögnvaldsson hefur varað við stafrænum dauða hennar. Þriðja dauðaspáin sem ég mun ræða hér er verk Eggerts Ólafssonar Sótt og daudi Islenzkunnar, hinnar afgömlu móður vorrar; í tveimur kvæðum framsett. Áhugaverður munur er á dauðaspánum þrem. Annars vegar spá Rask og Eiríkur ósigri gagnvart erlendum innrásaraðila, dönsku ellegar ensku. Eggert lætur tunguna hins vegar veslast upp og deyja af innanmeini vegna lélegrar málnotkunar barna sinna. Eiríkur og Rask horfa sem sé á stöðuvanda, en Eggert á form-vanda. Í kvæðinu lýsir Eggert því hvernig tungan veslast upp og deyr af iðrameini. Á bana-beði segir hún fyrir um útför sína. Þegnarnir skuli flá hana og gera sér mat úr innvolsinu. Úr skinninu eru gerðar trumbur sem slegnar eru í útfararveislunni, sem fer fram með miklum „hátíðarbrag“.

Jón Axel Harðarson:Um meinta hljóðbreytingu kwe > ko í norrænu og frumgermanska fyrirrennara íslensku orðanna koma og kona

Samkvæmt hefðbundinni skoðun eru norrænu orðin koma og kona komin af frumgermönskum myndum með hvarfstigi rótar. Tilsvarandi orð í gotnesku, qiman og qino, sýna hins vegar e-stig sömu róta. Í seinni tíð hafa sumir fræðimenn gert því skóna að norrænu orðin séu komin af sömu frumgermönsku myndum og hin gotnesku; hefur sú kenning verið sett fram að í nor-rænu hafi kwe sætt kringingu og orðið að kwo sem síðar hafi breyst í ko. Í fyrirlestrinum verður mat lagt á þessa kenningu.

Svavar Sigmundsson: „því eigum við sjálfir að skemma ockar túngumál og gjöra háð að sjálfum oss ?“ – Rask og málhreinsunarstarf hans

Rasmus Rask hóf að stunda málhreinsun móðurmáls síns, dönskunnar, þegar 1806 þá 19 ára. Hann komst snemma á þá skoðun eftir að hann kynntist íslensku að hún yrði að forðast að taka upp orð úr erlendum málum. Rask leit á Ludvig Holberg sem fyrirmynd þeirra sem vildu skrifa vandað mál og læsilegt. Hann áleit að Íslendingar þyrftu á slíkum manni að halda sem gæti endurskapað íslenska ritmálið með góðum stílshætti og hugsaði sér að Grímur Jóns-son síðar amtmaður gæti verið sá maður.  Rask hvatti hann til að rita á íslensku og verða þannig föðurlandi sínu að gagni. Fyrsta bókin sem hið nýstofnaða íslenska Bókmenntafélag gaf út og að frumkvæði Rasks var Almenn jarðarfræði og landaskipan eður geographia sem út kom 1821-1827.  Grímur hafði tekið að sér að skrifa fyrsta hluta ritsins og vann við það á árunum 1817-19 en það ár flutti hann til Íslands. Hann afsalaði sér þá verkinu og sömdu Þórður Sveinbjörnsson síðar dómstjóri og Gunnlaugur Oddsson dómkirkjuprestur það sem eftir var. Grímur taldi sig ekki kunna málið nægilega vel eftir langdvalir erlendis til þess að skrifa það svo hreint að til fyrirmyndar væri. Allmikil bréfaskipti urðu á milli Rasks og Gríms um landafræðina og kortin sem fylgdu og verður rakið nokkuð af skoðanaskiptum þeirra um málið en hugmyndir Rasks um málhreinsun koma þar skýrt fram.

Þorgeir Sigurðsson: Rasmus Kristian Rask og Arinbjarnarkviða

 Í ritgerð sinni árið 1818 um norræna fornmálið [1] lagði Rask til leiðréttingu á texta Arin-bjarnarkviðu 8.5–8.8 sem var:  ok sá muðr es mína bar hefð fyrir hilmis kné.  Rask lagði til að í stað hefð kæmi nafnið á kvæðinu hǫfuðlausn. Öllum hefur litist vel á þessa leiðréttingu. Í fyrirlestr-inum fer ég yfir þau sterku rök sem eru fyrir því að leiðrétting Rask sé réttmæt. Í útgáfu sinni sama ár á málfræðiritgerðum í Wormsbók [2] skrifaði Rask í neðanmálsgrein að línuparið: í herská hilmis garði kæmi úr Arinbjarnarkviðu. Útgefendum kviðunnar hefur ekki litist jafnvel á þessa tilgátu hans en hér ræði ég hvers vegna þetta gæti verið rétt hjá Rask.

[1] Rask, Rasmus Kristian. 1818a. Anvisning till Isländskan eller Nordiska Fornspråket. Wiborg, Stockholm, bls. 260.

[2] Rask, Rasmus Kristian (ed.). 1818b. Snorra-Edda, ásamt Skáldu og þarmeð fylgjandi ritgjörðum. Rask, Stockholm, bls. 329.

Þórhallur Eyþórsson: Rasmus Rask og almenn málvísindi

 Í verðlaunaritgerð sinni (Undersögelse om det gamle nordiske eller islandske Sprogs Oprindelse, 1818) einsetti Rasmus Rask sér að grafast fyrir um uppruna íslensku en lagði í leiðinni grunn að indóevrópskri samanburðarmálfræði. Eins og frægt er var þar m.a. sett fram tilgáta um sam-svaranir á milli samhljóðakerfis germanskra mála og annarra indóevrópskra mála sem síðar fengu nafnið germanska hljóðfærslan. Verðlaunaritgerðin er þó ekki aðeins upphafspunktur samanburðarmálfræði heldur er framlag hennar margslungnara og almennara. Í þessu erindi verður fjallað um þætti í verki Rasks sem hafa almennt gildi fyrir rannsóknir á mannlegu máli, bæði út frá nákvæmum lestri á verðlaunaritgerðinni sjálfri og umfjöllun annarra fræði-manna, einkum Holgers Pedersens (1931, 1932). Hér er tekið undir með Pedersen sem taldi að fyrsti kafli ritgerðarinnar væri frumlegasti hluti hennar því að þar væri í fyrsta sinn gerður greinarmunur á fræðilegum og hagnýtum röksemdum í málvísindum. Í fræðilega hlutanum er sett fram rannsóknaráætlun til að tryggja að hægt sé að bera saman það sem er sambærilegt í tungumálum, en hagnýti hlutinn hefur að geyma lýsingu á einstökum tungumálum í samræmi við markmið höfundar. Eitt merkilegasta atriðið í þessu samhengi er sá greinarmunur sem hér er gerður á lýsandi umfjöllun um tungumál annars vegar og almennari hugmyndum um eðli tungumálsins hins vegar. Til viðbótar því sem hér hefur verið rakið verður farið í saum-ana á röksemdum Pedersens um önnur aðferðafræðileg nýmæli hjá Rask. Þannig varð Rask fyrstur til að setja þá hugmynd skýrt fram að til að ákvarða skyldleika tungumála væru mál-fræðilegar samsvaranir meginatriði en samsvaranir í orðaforða skiptu síður máli (þar sem orð bærust auðveldlegar frá einu tungumáli til annars en kerfiseiningar). Að auki birtist hjá honum skilningur á ýmsum grundvallaratriðum í málvísindum sem orka „nútímaleg“ á les-andann, svo sem að málblöndun leiði til einföldunar, að orðasafni megi skipta í grundvallar-orðaforða og sérhæfðari orðaforða og að rök séu fyrir því að setja fram almenn – jafnvel algild – lögmál um hljóðbreytingar. Síðast en ekki síst er að nefna stutta en áhugaverða kafla um mál sem ekki teljast til indóeverópsku málaættarinnar: finnsku, grænlensku og basknesku, auk „asískra“ mála (m.a. hebresku og arabísku). Ályktað er út frá umfjöllun Pedersens og annarra fræðimanna að Rasmus Rask sé ekki aðeins frumkvöðull indóevrópskrar samanburðarmál-fræði heldur líka málvísinda í víðtækari skilningi.

news-1701

yakinjp

MAUJP

MAUJP

MAUJP

SATGASJITU

SLOT GACOR

SALAMJITU

SATGASJITU

SEMOGAJITU

SALAMJITU

Slot Gacor

Slot Gacor

SLOT GACOR

article 48666670301

article 48666670302

article 48666670303

article 48666670304

article 48666670305

article 48666670306

article 48666670307

article 48666670308

article 48666670309

article 48666670310

article 48666670311

article 48666670312

article 48666670313

article 48666670314

article 48666670315

article 48666670316

article 48666670317

article 48666670318

article 48666670319

article 48666670320

article 48666670321

article 48666670322

article 48666670323

article 48666670324

article 48666670325

article 48666670326

article 48666670327

article 48666670328

article 48666670329

article 48666670330

article 48666670331

article 48666670332

article 48666670333

article 48666670334

article 48666670335

article 48666670336

article 48666670337

article 48666670338

article 48666670339

article 48666670340

article 48666670341

article 48666670342

article 48666670343

article 48666670344

article 48666670345

article 48666670346

article 48666670347

article 48666670348

article 48666670349

article 48666670350

article 48666670351

article 48666670352

article 48666670353

article 48666670354

article 48666670355

article 48666670356

article 48666670357

article 48666670358

article 48666670359

article 48666670360

noticias 000000031

noticias 000000032

noticias 000000033

noticias 000000034

noticias 000000035

noticias 000000036

noticias 000000037

noticias 000000038

noticias 000000039

noticias 000000040

noticias 000000041

noticias 000000042

noticias 000000043

noticias 000000044

noticias 000000045

noticias 000000046

noticias 000000047

noticias 000000048

noticias 000000049

noticias 000000050

noticias 000000051

noticias 000000052

noticias 000000053

noticias 000000054

noticias 000000055

noticias 000000056

noticias 000000057

noticias 000000058

noticias 000000059

noticias 000000060

noticias 000000061

noticias 000000062

noticias 000000063

noticias 000000064

noticias 000000065

noticias 000000066

noticias 000000067

noticias 000000068

noticias 000000069

noticias 000000070

noticias 000000071

noticias 000000072

noticias 000000073

noticias 000000074

noticias 000000075

noticias 000000076

noticias 000000077

noticias 000000078

noticias 000000079

noticias 000000080

noticias 000000081

noticias 000000082

noticias 000000083

noticias 000000084

noticias 000000085

noticias 000000086

noticias 000000087

noticias 000000088

noticias 000000089

noticias 000000090

noticias 000000091

noticias 000000092

noticias 000000093

noticias 000000094

noticias 000000095

noticias 000000096

noticias 000000097

noticias 000000098

noticias 000000099

noticias 000000100

noticias 000000101

noticias 000000102

noticias 000000103

noticias 000000104

noticias 000000105

noticias 000000106

noticias 000000107

noticias 000000108

noticias 000000109

noticias 000000110

noticias 000000111

noticias 000000112

noticias 000000113

noticias 000000114

noticias 000000115

noticias 000000116

noticias 000000117

noticias 000000118

noticias 000000119

noticias 000000120

komunitas praya menyoroti perubahan pembahasan putaran gratis mahjong ways

selong tren diskusi mahjong wins tengah munculnya game digital baru

kreator konten tanjung mengangkat cerita perkembangan mahjong ways media sosial

sumbawa besar membahas tiga elemen visual mahjong wins 3 ubin emas naga scatter

komunitas digital semarang menelaah pengaruh animasi terhadap identitas game mahjong modern

yogyakarta menjadi sorotan diskusi perpaduan tradisi asia teknologi game

pengamat surabaya mengulas perubahan gaya ilustrasi seri mahjong digital

makassar membahas peran komunitas online menyebarkan tren konten mahjong

medan hingga palembang perbedaan perspektif penggemar terhadap visual mahjong ways

denpasar menyoroti perkembangan narasi budaya asia desain game mahjong kontemporer

sweet bonanza kabupaten pangkajene kepulauan mengenal mekanisme fitur putaran gratis

gates of olympus kabupaten muara enim perpaduan kisah mitologi teknologi animasi modern

lucky neko kota langsa cara simbol tradisional menyesuaikan diri selera generasi digital

wild bandito mahjong ways kabupaten garut perbandingan dua karakter visual berbeda

warga kabupaten lebak mengkaji cara membedakan klaim permainan informasi memiliki bukti

mahjong wins kota tanjungbalai menelaah fungsi simbol membentuk pengalaman visual

mengapa efek cahaya sering muncul fitur bonus pengamatan kabupaten tapanuli utara

lucky neko kabupaten hulu sungai selatan kombinasi karakter animasi ornamen bernuansa emas

gates of olympus kabupaten aceh besar memahami konsep peluang tanpa bergantung ramalan

sweet bonanza kota gorontalo menelusuri peran desain ceria membentuk identitas game

wild bandito kabupaten halmahera utara eksplorasi tema petualangan format interaktif

mahjong pgsoft kabupaten musi banyuasin perubahan pengalaman pengguna saat bermain melalui layar ponsel

princess starlight kota palangka raya mengulas fungsi cahaya elemen penceritaan

lucky neko sweet bonanza perbedaan pendekatan warna membangun identitas desain

warga kabupaten ende menelusuri pengaruh cerita budaya terhadap pembentukan karakter game digital

mengapa pemain lebih mudah mengingat kemenangan besar penjelasan bias ingatan kota madiun

bukan hanya hiburan warga kabupaten bekasi membahas pentingnya memahami batas pengeluaran digital

mahjong ways kabupaten magetan contoh memahami fenomena ilusi pola hasil acak

gates of olympus kota pagar alam menguraikan kesalahpahaman prediksi hasil permainan

warga kabupaten flores timur mengamati pengaruh notifikasi terhadap perhatian pengguna ponsel

sweet bonanza kota sukabumi membahas perbedaan ekspektasi pengguna peluang

wild bandito mahjong wins mengapa perbedaan desain bisa menarik kelompok pengguna beragam

lucky neko kabupaten tanah laut mengkaji simbol keberuntungan perspektif lintas budaya

literasi digital kabupaten sumbawa memahami rtp agar tidak terjebak penafsiran keliru

princess starlight kota tegal menelaah kontribusi tokoh pengalaman hiburan interaktif

article 88666670351

article 88666670352

article 88666670353

article 88666670354

article 88666670355

article 88666670356

article 88666670357

article 88666670358

article 88666670359

article 88666670360

article 88666670361

article 88666670362

article 88666670363

article 88666670364

article 88666670365

article 88666670366

article 88666670367

article 88666670368

article 88666670369

article 88666670370

informasi terbaru kabupaten belu 00000021

informasi terbaru kabupaten belu 00000022

informasi terbaru kabupaten belu 00000023

informasi terbaru kabupaten belu 00000024

informasi terbaru kabupaten belu 00000025

informasi terbaru kabupaten belu 00000026

informasi terbaru kabupaten belu 00000027

informasi terbaru kabupaten belu 00000028

informasi terbaru kabupaten belu 00000029

informasi terbaru kabupaten belu 00000030

informasi terbaru kabupaten belu 00000031

informasi terbaru kabupaten belu 00000032

informasi terbaru kabupaten belu 00000033

informasi terbaru kabupaten belu 00000034

informasi terbaru kabupaten belu 00000035

informasi terbaru kabupaten belu 00000036

informasi terbaru kabupaten belu 00000037

informasi terbaru kabupaten belu 00000038

informasi terbaru kabupaten belu 00000039

informasi terbaru kabupaten belu 00000040

informasi terbaru kabupaten belu 00000041

informasi terbaru kabupaten belu 00000042

informasi terbaru kabupaten belu 00000043

informasi terbaru kabupaten belu 00000044

informasi terbaru kabupaten belu 00000045

informasi terbaru kabupaten belu 00000046

informasi terbaru kabupaten belu 00000047

informasi terbaru kabupaten belu 00000048

informasi terbaru kabupaten belu 00000049

informasi terbaru kabupaten belu 00000050

informasi terbaru kabupaten belu 00000051

informasi terbaru kabupaten belu 00000052

informasi terbaru kabupaten belu 00000053

informasi terbaru kabupaten belu 00000054

informasi terbaru kabupaten belu 00000055

informasi terbaru kabupaten belu 00000056

informasi terbaru kabupaten belu 00000057

informasi terbaru kabupaten belu 00000058

informasi terbaru kabupaten belu 00000059

informasi terbaru kabupaten belu 00000060

informasi terbaru kabupaten belu 00000061

informasi terbaru kabupaten belu 00000062

informasi terbaru kabupaten belu 00000063

informasi terbaru kabupaten belu 00000064

informasi terbaru kabupaten belu 00000065

informasi terbaru kabupaten belu 00000066

informasi terbaru kabupaten belu 00000067

informasi terbaru kabupaten belu 00000068

informasi terbaru kabupaten belu 00000069

informasi terbaru kabupaten belu 00000070

informasi terbaru kabupaten belu 00000071

informasi terbaru kabupaten belu 00000072

informasi terbaru kabupaten belu 00000073

informasi terbaru kabupaten belu 00000074

informasi terbaru kabupaten belu 00000075

informasi terbaru kabupaten belu 00000076

informasi terbaru kabupaten belu 00000077

informasi terbaru kabupaten belu 00000078

informasi terbaru kabupaten belu 00000079

informasi terbaru kabupaten belu 00000080

news-1701