8. Ólafsþing 2025

Mál og saga býður alla velkomna á Ólafsþing fyrsta vetrardag, laugardaginn 25. október nk., í fyrirlestrasal Eddu við Arngrímsgötu.

Ráðstefnan fer nú fram í áttunda sinn og er haldin í samstarfi við Málvísindastofnun Háskóla Íslands.

Dagskrá

9:25–9:30 Þingið sett

9:30–10:00 Haukur Þorgeirsson: Formgerð, fílólógía og félagslegir þættir – þróun hins forna hljóðasambands ‘vá’

10:00–10:30 Jón Axel Harðarson: Um klofningu og stígandi tvíhljóð í fornnorrænu

10:30–11:00 Kaffihlé

11:00–11:30 Helgi Skúli Kjartansson: Bragreglan um „órofinn nafnlið“

11:30–12:00 Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík: Bragfræðileg óregla í miðaldarímum – samsláttur í braghendu og úrkasti

12:00–12:30 Yelena Sesselja Helgadóttir: Um tengsl þulubyggingar við umhverfi þulunnar, eða Fylgni enn óþekk(t)

12:30–13:30 Hádegishlé

13:30–14:00 Þorgeir Sigurðsson: Sagnaforliðurinn ‘of’ í elsta íslensku ritmáli

14:00–14:30 Guðvarður Már Gunnlaugsson: Eru 17 rithendur á íslensku hómilíubókinni? Eða aðeins ein?

14:30–15:00 Aðalsteinn Hákonarson: Textafræði örnefnaskrár

15:00–15:30 Kaffihlé

15:30–16:00 Katrín Axelsdóttir: Hugað að hælibörvum – Lítið eitt um rúnaristuna Qorlortup Itinnera 2 (GR NOR1998;10)

16:00–16:30 Guðrún Þórhallsdóttir: Leikur að orðsifjum – Taumhald, tamning, þamir og þumur í íslensku og færeysku

16:30–17:00 Jón Símon Markússon: Um útjöfnun algengra beygingarvíxla í fleirtölumyndum færeyskra karlkynsnafnorða

17:00 Ráðstefnuslit og léttar veitingar

Allir velkomnir

Útdrættir erinda (eftir stafrófsröð Fyrirlesara)

Aðalsteinn Hákonarson: Textafræði örnefnaskrár

Örnefnasafn Árnastofnunar er heimildasafn um örnefni og er uppistaðan í safninu svonefndar örnefnaskrár.  Sumar þeirra skráðu heimildarmenn sjálfir en flestar skráðu örnefnasafnarar eftir heimildarmönnum. Seint á sjöunda áratug síðustu aldar höfðu fengist örnefnaskrár af meginþorra bæja á landinu, yfir 7000 talsins, auk skráa um afréttir og fleira. Var þá ákveðið að beina kröftum í auknum mæli að því að endurskoða og auka við örnefnaskrár sem fyrir voru í safninu. Í kjölfarið hefur stór hluti örnefnaskráa verið endurskoðaður efnislega og einnig hefur stór hluti verið endurritaður án efnislegra breytinga. Er nú svo komið að flestar örnefnaskrár, sem miðlað er til notenda (nú einkum á vefnum nafnið.is), má líta á sem útgáfur á textum handrita (handskrifaðra og vélritaðra) sem hafa verið lögð til hliðar í skjalageymslu.

Í erindinu er fjallað um örnefnaskrá Kasthvamms og Árhvamms (í Reykdælahr. í S-Þing.) sem fyrirlesari bjó til nýrrar útgáfu árið 2023 í samráði við Hallgrím Pétursson frá Árhvammi (1934–2025). Saga skrárinnar er fjölþætt og flóknari en venja er og rannsókn á henni, sem gerð var við undirbúning útgáfunnar, varpar ljósi á sambandið milli útgefinna örnefnaskráa (sbr. nafnið.is) og gagnanna í skjalageymslunni sem eru t.d. frumrit, minnisbækur og eldri útgáfur á örnefnaskrám sem lagðar hafa verið til hliðar.

 

Guðrún Þórhallsdóttir: Leikur að orðsifjum: Taumhald, tamning, þamir og þumur í íslensku og færeysku

Í grein í Fróðskaparriti 69 (2023) fjallaði Jógvan í Lon Jacobsen um uppruna færeyska nafnorðsins tamarhald og hugsanleg tengsl þess við fær. teymahald og ísl. taumhald. Öll merkja orðin ‚tak, stjórn‘. Fyrri liður orðanna fær. teymahald, ísl. taumhald er fnorr. taumr ‚sá hluti beislis sem haldið er í‘, en fyrri liður orðsins tamarhald er að mati Jógvans óskyldur. Þar sé á ferðinni gamalt færeyskt orð, tomur (einnig tømur), en tilsvarandi orð séu ekki varðveitt í öðrum norrænum málum. Þetta sé kvenkynsorð af flokki ōn-stofna, nf. et. *tama, ft. *tǫmur. Inn í samsetta orðið *tama-hald með eignarfall fleirtölu sem fyrri lið hafi verið skotið r. Orðið *tama taldi Jógvan skylt so. temja (< *tamjan) og lo. tamur. Skýring Jógvans gerir því ráð fyrir að orðin tomur/tømur og tamarhald eigi uppruna í orði sem byrjaði á t á frumnorrænum tíma.

Hins vegar er einnig ástæða til að kanna hvort fyrrgreind orð geti átt frændorð með þ í íslensku af því að frumnorrænt *þ varð að t í færeysku (sbr. þak > tak, þeir > teir). Ef flett er upp í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar (1989) má t.d. finna no. þöm, þum og þuma sem öll merkja ‚rauf, æs‘. Í fyrirlestrinum verður rætt um uppruna þessara orða og hvað þurfi til að tengja þau fær. tomur/tømur og tamarhald.

 

Guðvarður Már Gunnlaugsson: Eru 17 rithendur á íslensku hómilíubókinni? Eða aðeins ein?

Íslenska hómilíubókin (Isl. Perg. 4to nr 15) í Konungsbókhlöðunni í Stokkhólmi er elsta íslenska handritið sem virðist hafa varðveist nokkurn veginn í heilu líki, en hún er talin hafa verið skrifuð um 1200. Handritið hefur verið gefið út þrisvar sinnum. Fyrsti útgefandinn, Theodor Wisén (1872, 1888a), taldi að það hefði verið skrifað af einum manni, en samtímamaður hans, Ludvig Larsson, (1887, 1888), taldi að það væru a.m.k. þrjár rithendur á því og jafnvel 10 (og hugsanlega 11). Vilhelm Gödel sagði í skrá sinni yfir íslensk og norsk handrit í Konungsbókhlöðunni að 7 manns hefðu skrifað bókina. Annar útgefandinn, Fredrik Paasche (1935), var varkárari og talaði um nokkrar rithendur en nefndi ekki nákvæman fjölda þeirra. Margir fræðimenn töluðu um nokkrar eða margar rithendur en nefndu yfirleitt ekki ákveðinn fjölda. Börje Westlund (1974) komst að þeirri niðurstöðu að rithendurnar væru 12, en Eva Rode (1974) fann 14 hendur. Fræðimenn eru ekki aðeins ósammála um fjölda rithanda, heldur einnig um hvar skil frá einni hönd til annarrar er að finna, þannig að ef öll rithandaskil, sem hafa verið nefnd, eru talin gæti fjöldi rithanda verið allt að 17. Síðasti útgefandinn, Andrea de Leeuw Van Weenen (1993), segir hins vegar að hún hafi tilhneigingu til að vera meira og meira þeirrar skoðunar að aðeins einn skrifari hafi verið að verki.

Í þessum fyrirlestri mun ég íhuga hvers vegna fræðimenn hafa komið með svo ólíkar skoðanir á því hversu margar hendur eru í íslensku hómilíubókinni og reyna að finna rökin fyrir skilunum frá einni rithendi til annarrar. Einnig velta vöngum yfir hvort aðeins einn skrifari hafi skrifað bókina.

 

Haukur Þorgeirsson: Formgerð, fílólógía og félagslegir þættir – þróun hins forna hljóðasambands ‘vá’

Alþekkt er að hljóðasambandið sem í samræmdri stafsetningu fornri er ritað vá hefur í flestum tilfellum orðið að vo í nútímamáli. Um eðli þessarar breytingar setti Hreinn Benediktsson fram sannfærandi kenningu en samkvæmt henni felst breytingin í því að sérhljóðið í þessu sambandi var endurtúlkað. Fyrst tvíhljóðaðist á víðast hvar úr [ɔː] í [auː] en viðhélt einhljóðsframburðinum í hljóðasambandinu vá. Við hljóðdvalarbreytinguna varð lengd sérhljóða síðan stöðubundin og rann þá sérhljóðið í sambandinu vá saman við hið forna o.

Ég tel að kenning Hreins sé rétt. Eigi að síður er hægt að bæta verulega við hans greiningu með því að nálgast viðfangsefnið frá öðrum sjónarhóli. Hreinn skrifaði í anda formgerðarstefnunnar og leitaðist við að skýra þau gögn sem hann vann með út frá kenningum sínum um sérhljóðakerfi íslensku og sambandi eininganna innan þess kerfis. Markmið mitt er hins vegar að fylla inn í myndina annars vegar frá fílólógísku sjónarmiði og hins vegar frá samfélagslegu sjónarmiði. Ég hef gert nýja könnun á heimildunum sem við höfum og leitast við að setja mig í spor þeirra málnotenda sem sköpuðu þær heimildir. Ég spyr þá að því hvaða þættir – til viðbótar við sjálfar málbreytingarnar – stýri því hvernig gögnin líta út.

Þau gögn sem hér eru greind skiptast í tvo flokka – annars vegar stafsetning og hins vegar kveðskapur. Fyrst er hér farið í saumana á íslenskri stafsetningu frá 14. öld og fram á 17. öld, með áherslu á dagsett skjöl. Síðan er kannað hvernig rími í kveðskap er háttað bæði fyrir og eftir hljóðdvalarbreytingu, einkum hjá rímnaskáldunum. Þessir tveir flokkar heimilda benda á sömu niðurstöður.

 

Helgi Skúli Kjartansson — Bragreglan um „órofinn nafnlið“

Útgangspunktur er braglína í Bersöglisvísum Sighvats:

Sighvats hugr es hittig (handritin)

Sighvats hugr mun hittask (Finnur Jónsson)

Sighvats es hugr hizig (E. A. Kock)

með rökstuðningi Kari Ellen Gade:

The ms. readings are unmetrical. In a noun phrase consisting of two elements, alliteration cannot fall on the second element without the first element also alliterating.

Kock gerir þó ráð fyrir gildum frávikum frá reglunni, jafnvel hjá Sighvati sjálfum: gaf margan val vargi (og því þá ekki: *mun Sighvats hugr hittask ?), þó hann fylgi reglunni í  Hlýð mínum brag, meiðir.

Fyrir utan dróttkvæðar braglínur með þessari ákveðnu hrynjandi er reglan greinilega gild í mestöllum fornum kveðskap. Hana verður að skilja svo að í fornmálinu hafi órofinn nafnliður verið ein framburðarlota með þyngstri áherslu á fyrra/fyrsta orðið.

Út frá því verður rætt um bragfræðilega túlkun nokkurra braglína, m.a.:

Hann sló gull rautt

sem fljótt á litið brýtur bæði gegn braggerðaflokkun Sievers og lögmáli Cragies en gerir raunar hvorugt. Og

Kominn em´k á jó Íva

Þat mælti mín móðir

Esa mér sem tinteini

sem er flókið – ekki þó ómögulegt – að koma heim við þá túlkun á Cragies-lögmáli að fjórða bragstaðan, hér jó, mín og tin-, megi ekki yfirskyggja þá fimmtu.

Til að sú túlkun standist þarf hún að hafa framkallað Craigies-lögmálið á elsta stigi dróttkvæðs háttar. Síðan hafi reglan þróast, farið að leyfa frávik, með þyngri áherslu á fjórðu stöðu en fimmtu, og verið yfirfærð á bragarhætti eins og fornyrðislag og stutta runhendu þar sem fimmta bragstaðan var aldrei til. Þó venja sé að telja dróttkvæðan hátt myndaðan af fornyrðislagi, þá er raunar alveg mögulegt að hið varðveitta sér-norræna fornyrðislag hafi þróast samhliða honum og þegið bragreglur að láni frá honum.

Þar opnast spurning sem reynt verður að reifa fremur en svara um „ættartré“ fornu háttanna og uppruna þeirra í ringulreið „stóra brottfalls“.

 

Jón Axel Harðarson: Um klofningu og stígandi tvíhljóð í fornnorrænu

Hljóðasambönd sem sett eru saman af hálfsérhljóðinu j [i̯] eða v [u̯] og sérhljóði eru oft kölluð „stígandi tvíhljóð“, sbr. orð eins og jata, bjarg, jǫfurr, fjǫrðr, sjá, trjóm, fjós, bjóða, kljúfa, vara, sverð, vándr, svę́fa, vǫ́n, vín. Stígandi tvíhljóð sem hafa j sem fyrri þátt eru orðin til á ólíkan hátt:

  • við klofningu: í áhersluatkvæði gat sérhljóðið e „klofnað“ ef a eða u (sem síðar féll oft brott) fór á eftir í næsta atkvæði. Útkoman var þá ja (a-klofning) eða jo/jǫ (u-klofning). Þetta á t.d. við um orðin jata, bjarg, jǫfurr, fjǫrðr;
  • við samdrátt, sbr. sjá, frjá, trjóm, Sjólfr, skjóttr < séa, fría, tréom, Sæulfr/Sæolfr, *skýóttr;
  • úr gömlu hnígandi tvíhljóði eu, sbr. bjóða, kljúfa < *beuðan, *kleuƀan.

Þessum stígandi tvíhljóðum er það sameiginlegt að í þeim hefur fyrri þátturinn (j) orðið til úr frammæltu sérhljóði. Þó er sá munur á þeim að í (1) þróaðist stutt sérhljóð á eftir j en í (2) og (3) langt sérhljóð. Í erindinu verður reynt að útskýra þessa ólíku þróun og tilgáta sett fram um þá hljóðkerfislegu ferla sem liggja að baki.

 

Jón Símon Markússon: Um útjöfnun algengra beygingarvíxla í fleirtölumyndum færeyskra karlkynsnafnorða

Bæði færeyska og íslenska erfðu beygingarvíxl af taginu kk. a-st. nf.ft. hestar ~ þf.ft. hesta, kk. i-st. gestir ~ gesti úr fornvesturnorrænu. Umræddar karlkynsmyndir hafa þó fallið saman í færeysku og eru nú undantekningarlaust samhljóða (e. syncretic), sbr. fær. nf./þf.ft. hestar, gestir. Að öllum líkindum var breytingin um garð gengin um eða upp úr 1900. Fyrir samfallið voru karlkynsmyndir með nf./þf.ft. –ur og allar samsvarandi kvenkyns- og hvorugkynsmyndir samhljóða. Að auki voru samhljóða myndir langtum fleiri en þær sem lutu að víxlum af taginu nf.ft. –ar ~ þf.ft. –a, –ir ~ –i. Í fyrirlestrinum verða færð rök fyrir því að hærri mynsturstíðni (e. type frequency) samhljóma (e. syncretism) í nefnifalli og þolfalli fleirtölu hafi haldist í hendur við nær undantekningarlaust hvarf gamals r úr bakstöðu mynda á borð við fær. kk. nf.ft. hestar, gestir, kvk. nf./þf.ft. myndir, skeiðar, søgur á undan viðskeytta greininum með n-, sbr. fær. (borið fram) hestarnir hestarnir [hɛstanɪɹ], gestirnir [͡tʃɛstɪnɪɹ] myndirnar [mɪntɪnaɹ] o.fl. Við ofangreint hvarf r í færeyskum karlkyns a– og i-stofnum fór ein óákveðin fleirtölumynd með –r, sbr. nf.ft. hestar, að víxlast á við þrjár r-lausar myndir, sbr. þf.ft. hesta, nf.ft.mgr. hestarnir [hɛstanɪɹ], þf.ft.mgr. hestanar; sömuleiðis gestir : gesti, gestirnir [͡tʃɛstɪnɪɹ], gestinar. Við sömu breytingu eignuðust kvenkynsorð aftur á móti tvær samsvarandi og samhljóða óákveðnar myndir með r á móti tveimur án r, t.d. nf./þf.ft. myndir : nf./þf.ft.mgr. myndirnar [mɪntɪnaɹ]. Eftir hvarf r á undan greininum taka færeysk hvorugkyns ija-stofna og an-stofna orð upp r í óákveðnum fleirtölumyndum, t.d. nf./þf.ft. dømir (eldra dømi), sbr. ísl. dæmi; nf./þf.ft. eygur (eldra eygu), sbr. ísl. augu. Við þessa breytingu er andstæðunni milli tveggja óákveðinna fleirtölumynda með r annars vegar og tveggja ákveðinna mynda án r hins vegar nú dreift –– þó nokkuð ójafnt –– yfir nafnorð af öllum þremur kynjunum, t.d. kk. nf./þf.ft. føtur : nf./þf.ft.mgr. føtu_nar; kvk. myndir : myndi_nar; hk. dømir : dømi_ni, eygur : eygu_ni. Sýnt verður fram á að há mynsturstíðni samhljóma, auk dreifitíðni (e. dispersion) nýju andstæðunnar milli r og r-leysis í fleirtölumyndum orða af öllum þremur kynjum stuðlar að samfalli r-lausu myndanna í þolfalli fleirtölu við nefnifallsmyndina með r og þar með undantekningalausum samhljóma nefnifalls og þolfalls fleirtölu í færeyskum nafnorðum. Undir þetta ýtti hinn litli hljóðfræðilegi munur sem var á greinislausum nefnifalls- og þolfallsmyndum í fleirtölu karlkynsorðanna, sbr. nf.ft. hestar og hesta, sömuleiðis gestir og gesti.

 

Katrín Axlsdóttir: Hugað að hælibörvum – Lítið eitt um rúnaristuna Qorlortup Itinnera 2 (GR NOR1998;10)

Grænlenskar rúnaristur eru ekki ýkja margar í samanburði við þann fjölda sem fundist hefur í Skandinavíu. Á vefnum Rundata.info eru þær rétt rúmlega hundrað (sænskar ristur eru þar hátt í 4000). Flestar grænlensku risturnar eru stuttar og margar eru mjög skaddaðar og því torráðnar. Frá þessu eru þó undantekningar, t.d. áletrun á kefli sem fannst við uppgröft í lok síðustu aldar við bæinn Qorlortup Itinnera (Eystribyggð, nærri Brattahlíð), GR NOR1998;10. Rúnir eru á báðum hliðum keflisins, tæplega 50 á hvorri hlið, og flestar þeirra ágætlega læsilegar. Engin orðaskil eru þó sýnd og textinn því nokkuð óljós. Hér hafa menn samt talið sig greina kveðskap og þar með fyrstu heimildina um ritaðan norrænan kveðskap á Grænlandi. Þarna er enda að finna orðið hœlibǫrr, orð sem kemur fyrir í lausavísu eignaðri Íslendingnum Hásteini Hrómundarsyni (10. öld) en fyrri hlutinn hljóðar svo: Hér megu hœlibǫrvar / hljóms daltangar skjóma / dýrs hvat drýgðu fjórir / dags verks séa merki (Hér megu séa merki dags verks daltangar, hvat fjórir hœlibǫrvar dýrs skjóma hljóms drýgðu; Skjaldedigtning BI:91). Orðið hœlibǫrr kemur annars hvergi fyrir annars staðar. Í vísunni vísar það til manns (bǫrr merkir‛tré’ en er notað í ýmsum mannskenningum í skáldskap, s.s. auðs bǫrvar og baugs bǫrvar; fyrri liðurinn hœli– er talinn skyldur sögninni hœla ‛hrósa’) og með kenningunni skjóma hljómr (‛orrusta’) er þetta þá ‛stríðsmaður’.

Í erindinu verður rætt um hœlibǫrr og önnur orð sem hugsanlega má lesa í Qorlortup Itinnera 2, aldur ristunnar og málstig. Þá verður ræddur sá möguleiki að í áletruninni sé eitthvað annað á ferðinni en kveðskapur.

 

Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík: Bragfræðileg óregla í miðaldarímum: samsláttur í braghendu og úrkasti

Þegar kemur að aldursgreiningu rímna hafa sumir fræðimenn bent á bragfræðilega óreglu til marks um háan aldur rímnaflokka (e.g. óreglulegur ferskeyttur háttur Sörla rímna). Í rímum fyrir 1600 eru nokkur dæmi um bragfræðilega óreglu, þar sem samsláttur á bragarháttum innan rímu virðist ekki hafa talist skipta háttum og/eða ekki álitinn vera braglýti fyrr en á seinni tíð. Oft er því slegið fram að í elstu rímum komi slíkur samsláttur hátta fyrir eða þá á elsta skeiði rímna. En getur slík bragfræðileg óregla í raun verið aldursgreinandi og á hvaða tímabili er slíkur samsláttur algengur?

Braghendan er elsti þríkvæði hátturinn en í miðaldarímum eru þó dæmi um að braghendu og valhendu sé slegið saman, en hættirnir eru keimlíkir. Í braghendu eru öll vísuorð óstýfð meðan í valhendu eru öll vísuorð stýfð. Í alls 9 rímum, í 7 rímnaflokkum er þessum tveim háttum slegið saman og virðist ekki vera gerður greinamunur á háttunum.

Það sama á við um úrkast, sem er eitt elsta afbrigði ferkvæða háttarins. Í reglulegu úrkasti eru frumlínur ýmist stýfðar eða óstýfðar meðan síðlínur eru ávallt óstýfðar. Í eldri rímum er ekki gerður greinamunur á reglulegu úrkasti og frumstýfðu úrkasti, og standa afbrigðin þar í frjálsri dreifingu. Það kemur þó fyrir í miðaldarímum að úrkasti er blandað saman við dverghendu – sem er eins og úrkast nema að þar eru síðlínur stýfðar. Séu öll vísuorð stýfð er hátturinn frumstýfð dverghenda. Í miðaldarímum eru dæmi um að úrkasti og dverghendu, jafnvel frumstýfðri dverghendu, sé slegið saman í alls 8 rímum í jafnmörgum rímnaflokkum.

Hér er ætlunin að skoða nánar þau tilvik þar sem braghendu og valhendu eða úrkasti og dverghendu er slegið saman og athuga hvort slík bragfræðileg óregla geti verið aldursgreinandi.

 

Yelena Sesselja Helgadóttir: Um tengsl þulubyggingar við umhverfi þulunnar, eða Fylgni enn óþekk(t)

Greint verður frá tilraun minni til að komast með reikniaðferðum að því hvort og þá hversu mikið bygging þulu tengist umhverfi hennar, eða ytri aðstæðum. ‚Þulubygging‘ er í þessu samhengi samsetning þulunnar, þ.e. hvaða textabútar mynda þulu og í hvaða röð þeir koma. Með ‚umhverfi‘ þulu eða ‚aðstæðum‘ er átt við hvar og hvenær þulan var skrifuð niður eða tekin upp, hvenær heimildarmaður hennar fæddist eða hvar hann var uppalinn eða búsettur á fullorðinsárum, jafnvel hvert kyn eða starf hans var. Áður en ég hóf tilraunina hafði ég fundið nokkur tilbrigði sem tengdust einhverju svæði á landinu og nokkrar byggingareiningar sem virðast einkum hafa verið til á einhverri ákveðinni öld. Ég reiknaði því með ákveðinni fylgni milli þulubyggingar og a.m.k. einhverra þátta í umhverfi þulna.

Aðferðin byggist á mælanlegri textafjarlægð, en reiknaður er fylgnistuðull á milli tveggja fjarlægðarfylkja (e. distance matrices), annars sem lýsir þulubyggingu og hins sem lýsir umhverfi þulutextanna. Í Þórnaldarþulu, sem varð fyrir valinu, kóðaði ég byggingu hvers texta með bókstöfum (hver bókstafur táknaði sína textablokk, þ.e. tiltölulega stöðugan, þó ekki tilbrigðalausan þulukafla). Aðstæður þulna kóðaði ég með tölustöfum og merkinu ‚?‘ (=óþekkt). Þessir tveir kóðar voru síðar meðhöndlaðir sem textastrengir. Á grundvelli strengjanna voru reiknuð Hamming-fjarlægðarfylki og á milli fylkjanna var reiknaður fylgnistuðull Pearsons. Sama ferli var síðar endurtekið til að fá fylgnistuðul Pearsons fyrir hvern þátt í umhverfi þulna sér í lagi. Fylgnistuðullinn reyndist ávallt – og óvænt – vera mjög lítill. Sömu sögu var að segja frá öðrum þuluflokki, Heyrði ég í hamrinum, sem ég notaði sem samanburðarhóp.

Nýlega endurtók ég tilraunina en reiknaði fjarlægðarfylki út frá heildartextum þulnanna (en ekki kóðaðri byggingu þeirra). Þá gefur sama aðferðin nokkuð frábrugðnar niðurstöður sem verður greint frá í erindinu.

 

Þorgeir Sigurðsson: Sagnaforliðurinn ‘of’ í elsta íslensku ritmáli

Í fornum textum, fram til um 1225, var að finna torskilið smáorð, of, framan við sagnir. Árið 1929 hélt Hans Kuhn því fram að þetta smáorð breytti sögninni þannig að í stað þess að hún lýsti verknaði sagnar lýsti hún möguleika á verknaðinum. Hann benti á sams konar smáorð í fornri grísku. Aðrir hafa ekki tekið undir þetta með Kuhn, fyrr en dr. Þorgeir Sigurðsson gerði það í grein sem birtist á þessu ári í septemberhefti Beiträge zur Geschichte der deutschen Sprache und Literatur (PBB). Í greininni er farið yfir rök Kuhn og bætt við þau. Í fyrirlestrinum er þessu lýst. Eins og gildir um gríska smáorðið er íslenska smáorðið helst notað í tilteknum gerðum setninga. Í íslensku fornmáli er það í setningum þar sem merkingargreinandi munur er mestur á því að verknaður sé framkvæmdur og að hann sé mögulegur. Kuhn lýsti þremur gerðum slíkra setninga en í greininni er þeirri fjórðu bætt við. Þetta verður til þess að í 90 prósent tilvika er umrætt smáorð í slíkum setningum. Þar að auki er bent á að smáorðið er aldrei haft framan við sagnir í þátíð í framsöguhætti. Í þriðja lagi er sýnt hvernig megi umorða setningar með umræddu smáorði þannig að merkingin komist til skila, án þess að nota of.

Dæmi með of úr Hómilíubókinni;

að aldregi of es réttlátur, nema þolinmóður sé.

Merkingin er: að sá getur ekki verið réttlátur sem ekki er þolinmóður

Til skýringar á þessu segir:

Því að oft er annars fús en réttast of skilur vera og þarf af því þolinmæðina með réttlætis viljanum á móti fýstar viljanum röngum.

Merking er hér: því að oft er maður fús að gera það sem maður getur skilið að er ekki réttast og þess vegna þarf þolinmæðina ásamt réttlætis viljanum á móti röngum fýsnar viljanum.

news-1701

yakinjp

MAUJP

MAUJP

MAUJP

SATGASJITU

SLOT GACOR

SALAMJITU

SATGASJITU

SEMOGAJITU

SALAMJITU

Slot Gacor

MAUJP

Slot Gacor

SLOT GACOR

https://kominfo.belukab.go.id/

https://www.kampunginggris.id/

https://jhpartners.net/

informasi terbaru kabupaten belu 00000101

informasi terbaru kabupaten belu 00000102

informasi terbaru kabupaten belu 00000103

informasi terbaru kabupaten belu 00000104

informasi terbaru kabupaten belu 00000105

informasi terbaru kabupaten belu 00000106

informasi terbaru kabupaten belu 00000107

informasi terbaru kabupaten belu 00000108

informasi terbaru kabupaten belu 00000109

informasi terbaru kabupaten belu 00000110

informasi terbaru kabupaten belu 00000111

informasi terbaru kabupaten belu 00000112

informasi terbaru kabupaten belu 00000113

informasi terbaru kabupaten belu 00000114

informasi terbaru kabupaten belu 00000115

informasi terbaru kabupaten belu 00000116

informasi terbaru kabupaten belu 00000117

informasi terbaru kabupaten belu 00000118

informasi terbaru kabupaten belu 00000119

informasi terbaru kabupaten belu 00000120

informasi terbaru kabupaten belu 00000121

informasi terbaru kabupaten belu 00000122

informasi terbaru kabupaten belu 00000123

informasi terbaru kabupaten belu 00000124

informasi terbaru kabupaten belu 00000125

informasi terbaru kabupaten belu 00000126

informasi terbaru kabupaten belu 00000127

informasi terbaru kabupaten belu 00000128

informasi terbaru kabupaten belu 00000129

informasi terbaru kabupaten belu 00000130

informasi terbaru kabupaten belu 00000131

informasi terbaru kabupaten belu 00000132

informasi terbaru kabupaten belu 00000133

informasi terbaru kabupaten belu 00000134

informasi terbaru kabupaten belu 00000135

informasi terbaru kabupaten belu 00000136

informasi terbaru kabupaten belu 00000137

informasi terbaru kabupaten belu 00000138

informasi terbaru kabupaten belu 00000139

informasi terbaru kabupaten belu 00000140

informasi terbaru kabupaten belu 00000141

informasi terbaru kabupaten belu 00000142

informasi terbaru kabupaten belu 00000143

informasi terbaru kabupaten belu 00000144

informasi terbaru kabupaten belu 00000145

informasi terbaru kabupaten belu 00000146

informasi terbaru kabupaten belu 00000147

informasi terbaru kabupaten belu 00000148

informasi terbaru kabupaten belu 00000149

informasi terbaru kabupaten belu 00000150

informasi terbaru kabupaten belu 00000151

informasi terbaru kabupaten belu 00000152

informasi terbaru kabupaten belu 00000153

informasi terbaru kabupaten belu 00000154

informasi terbaru kabupaten belu 00000155

informasi terbaru kabupaten belu 00000156

informasi terbaru kabupaten belu 00000157

informasi terbaru kabupaten belu 00000158

informasi terbaru kabupaten belu 00000159

informasi terbaru kabupaten belu 00000160

article 48666670361

article 48666670362

article 48666670363

article 48666670364

article 48666670365

article 48666670366

article 48666670367

article 48666670368

article 48666670369

article 48666670370

article 48666670371

article 48666670372

article 48666670373

article 48666670374

article 48666670375

article 48666670376

article 48666670377

article 48666670378

article 48666670379

article 48666670380

article 48666670381

article 48666670382

article 48666670383

article 48666670384

article 48666670385

article 48666670386

article 48666670387

article 48666670388

article 48666670389

article 48666670390

article 48666670391

article 48666670392

article 48666670393

article 48666670394

article 48666670395

article 48666670396

article 48666670397

article 48666670398

article 48666670399

article 48666670400

article 48666670401

article 48666670402

article 48666670403

article 48666670404

article 48666670405

article 48666670406

article 48666670407

article 48666670408

article 48666670409

article 48666670410

article 58666670411

article 58666670412

article 58666670413

article 58666670414

article 58666670415

article 58666670416

article 58666670417

article 58666670418

article 58666670419

article 58666670420

article 58666670421

article 58666670422

article 58666670423

article 58666670424

article 58666670425

article 58666670426

article 58666670427

article 58666670428

article 58666670429

article 58666670430

article 58666670431

article 58666670432

article 58666670433

article 58666670434

article 58666670435

article 58666670436

article 58666670437

article 58666670438

article 58666670439

article 58666670440

article 58666670441

article 58666670442

article 58666670443

article 58666670444

article 58666670445

article 58666670446

article 58666670447

article 58666670448

article 58666670449

article 58666670450

article 58666670451

article 58666670452

article 58666670453

article 58666670454

article 58666670455

article 58666670456

article 58666670457

article 58666670458

article 58666670459

article 58666670460

article 58666670461

article 58666670462

article 58666670463

article 58666670464

article 58666670465

article 58666670466

article 58666670467

article 58666670468

article 58666670469

article 58666670470

article 58666670471

article 58666670472

article 58666670473

article 58666670474

article 58666670475

article 58666670476

article 58666670477

article 58666670478

article 58666670479

article 58666670480

article 58666670481

article 58666670482

article 58666670483

article 58666670484

article 58666670485

article 58666670486

article 58666670487

article 58666670488

article 58666670489

article 58666670490

article 58666670491

article 58666670492

article 58666670493

article 58666670494

article 58666670495

article 58666670496

article 58666670497

article 58666670498

article 58666670499

article 58666670500

article 58666670501

article 58666670502

article 58666670503

article 58666670504

article 58666670505

article 58666670506

article 58666670507

article 58666670508

article 58666670509

article 58666670510

artikel 88666670411

artikel 88666670412

artikel 88666670413

artikel 88666670414

artikel 88666670415

artikel 88666670416

artikel 88666670417

artikel 88666670418

artikel 88666670419

artikel 88666670420

artikel 88666670421

artikel 88666670422

artikel 88666670423

artikel 88666670424

artikel 88666670425

artikel 88666670426

artikel 88666670427

artikel 88666670428

artikel 88666670429

artikel 88666670430

artikel 88666670431

artikel 88666670432

artikel 88666670433

artikel 88666670434

artikel 88666670435

artikel 88666670436

artikel 88666670437

artikel 88666670438

artikel 88666670439

artikel 88666670440

artikel 88666670441

artikel 88666670442

artikel 88666670443

artikel 88666670444

artikel 88666670445

artikel 88666670446

artikel 88666670447

artikel 88666670448

artikel 88666670449

artikel 88666670450

artikel 88666670451

artikel 88666670452

artikel 88666670453

artikel 88666670454

artikel 88666670455

artikel 88666670456

artikel 88666670457

artikel 88666670458

artikel 88666670459

artikel 88666670460

artikel 88666670461

artikel 88666670462

artikel 88666670463

artikel 88666670464

artikel 88666670465

artikel 88666670466

artikel 88666670467

artikel 88666670468

artikel 88666670469

artikel 88666670470

artikel 88666670471

artikel 88666670472

artikel 88666670473

artikel 88666670474

artikel 88666670475

artikel 88666670476

artikel 88666670477

artikel 88666670478

artikel 88666670479

artikel 88666670480

artikel 88666670481

artikel 88666670482

artikel 88666670483

artikel 88666670484

artikel 88666670485

artikel 88666670486

artikel 88666670487

artikel 88666670488

artikel 88666670489

artikel 88666670490

artikel 88666670491

artikel 88666670492

artikel 88666670493

artikel 88666670494

artikel 88666670495

artikel 88666670496

artikel 88666670497

artikel 88666670498

artikel 88666670499

artikel 88666670500

artikel 88666670501

artikel 88666670502

artikel 88666670503

artikel 88666670504

artikel 88666670505

artikel 88666670506

artikel 88666670507

artikel 88666670508

artikel 88666670509

artikel 88666670510

artikel 98666670511

artikel 98666670512

artikel 98666670513

artikel 98666670514

artikel 98666670515

artikel 98666670516

artikel 98666670517

artikel 98666670518

artikel 98666670519

artikel 98666670520

artikel 98666670521

artikel 98666670522

artikel 98666670523

artikel 98666670524

artikel 98666670525

artikel 98666670526

artikel 98666670527

artikel 98666670528

artikel 98666670529

artikel 98666670530

artikel 98666670531

artikel 98666670532

artikel 98666670533

artikel 98666670534

artikel 98666670535

artikel 98666670536

artikel 98666670537

artikel 98666670538

artikel 98666670539

artikel 98666670540

artikel 98666670541

artikel 98666670542

artikel 98666670543

artikel 98666670544

artikel 98666670545

artikel 98666670546

artikel 98666670547

artikel 98666670548

artikel 98666670549

artikel 98666670550

artikel 186666700001

artikel 186666700002

artikel 186666700003

artikel 186666700004

artikel 186666700005

artikel 186666700006

artikel 186666700007

artikel 186666700008

artikel 186666700009

artikel 186666700010

artikel 186666700011

artikel 186666700012

artikel 186666700013

artikel 186666700014

artikel 186666700015

artikel 186666700016

artikel 186666700017

artikel 186666700018

artikel 186666700019

artikel 186666700020

artikel 186666700021

artikel 186666700022

artikel 186666700023

artikel 186666700024

artikel 186666700025

artikel 186666700026

artikel 186666700027

artikel 186666700028

artikel 186666700029

artikel 186666700030

artikel 186666700031

artikel 186666700032

artikel 186666700033

artikel 186666700034

artikel 186666700035

artikel 186666700036

artikel 186666700037

artikel 186666700038

artikel 186666700039

artikel 186666700040

artikel 186666700041

artikel 186666700042

artikel 186666700043

artikel 186666700044

artikel 186666700045

artikel 186666700046

artikel 186666700047

artikel 186666700048

artikel 186666700049

artikel 186666700050

news-1701