Aðalfundur Máls og sögu 2025 og fyrirlestur Þorgeirs Sigurðssonar

Aðalfundur félagsins verður haldinn föstudaginn 20. júní nk. kl. 15:00 í stofu 209 í Eddu, Arngrímsgötu 5, 107 Reykjavík. Eftir fundinn eða kl. 15:30 mun Þorgeir Sigurðsson doktor í íslenskri málfræði og sérfræðingur í þróun norrænnar bragfræði flytja erindi. Titill og lýsing þess fer hér á eftir:

Kjár og Caesar

Um nafnið Kjár segir Ásgeir Bl. Magnússon (1989: 458): „karlmannsnafn (í Eddukv.); sagnkonungsheiti. Uppruni óljós, afbökun eða ummyndun e-s erlends heitis, e.t.v. úr Caesar eða komið úr fír. cíar ‘brúnn’“. Í erindinu verða leidd rök að því að Kjár sé nafnið, en ekki titillinn, Caesar. Samanburður á íslenskum og fornenskum heimildum ásamt nýrri túlkun á vísu í Bandadrápu rennir stoðum undir þessa skýringu. Að lokum verður rætt um þá kenningu Guðbrands Vigfússonar að Eddukvæði geymi minningu um átök Germana og Ágústusar keisara.

Allir velkomnir